Þar sem sólin skín hæðst á lofti, fagur grænar greinar glimra við augnsýnina og hitinn fær mann til að líða vel og vilja vera úti, þá ráðlegg ég þér að skilja ilmvatnið/bodyspreyjið eftir í brúsanum heima hjá þér.
Þó svo að sumarið hefur marga mjög góða kosti, hefur það allavega einn gríðarstóran galla. "PÖDDURNAR", fiski-, hrossa- og mýflugurnar láta sjá sig, geitungarnir og býflugurnar verða stærri og grimmari, tala nú ekki um þessa nýju býflugnategund sem kom í sumar þetta ár.
Það er einmitt þannig að flugurnar sækja rosalega í ilminn sem þú sprautar á þig, ef þú vilt forðast flugurnar sem mest skaltu forðast ilminn einnig. Enda er alltaf að koma sterkari og sterkari inn að vera sem náttúrulegust.
Fólk er komið með ógeð á tágrönnu, lýtaaðgerða meikdollunum. Fólk er meira að sækjast í manneskjur með alvöru fallegar línur, sem minnst farðað og bara sem náttúrulegast, því ekki að ilma náttúrulega líka ;)
Bloggar | 24.5.2010 | 21:21 (breytt kl. 21:25) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég hef oft heyrt fólk tala um orðtakið "ég þarf að taka mitt út". Hvað er fólk raunverulega að meina þegar það tala um það? Er samfélagið virkilega orðið þannig að fólk þarf að taka sinn tíma í að djamma af sér rassinn til að vera ánægð/-ur með lífið, hamingjusamt?
Ég þekki dæmi um unga konu sem eignaðist barn ung að aldri, þar með þegar vinkonur hennar fóru út á lífið varð hún heima með barnið, og að sjálfsögðu barnsfaðirinn á skrallinu líka. Svo þegar barnið var komið á þann aldur að vera fært um að hugsa um sig sjálft, og þurfti ekki eins mikla eftirtekt og umþykkju, barnsfaðirinn þá búinn að "taka sitt út", þá fór móðirin að fara meira út á lífið, fór að hanga með yngri konum (sem áttu ekki eiginmenn og börn), og þar með að taka "sitt út" !
Þarf mannskepnan virkilega í dag, einhvern tíma í lífinu þar sem það verður kærulaust, sjálfselskt og dettur oft í það? Fyrir þann tíma var fólk að eignast barn og börur yngra en gerist í dag, þá þótti það sjálfsagt og ef þú varst ekki kominn á þann aldur með barn og eiginmann þá varstu litinn niður á við. Konan mátti alls ekki neyta áfengis, átti að hugsa um barnið meðan karlinn var að vinna og á djamminu með félögum sínum. Þetta þótti hið besta mál. Í dag er litið niður á fólk sem eignast barn á grunnskólaaldri, það er litið niður á menn sem djamma og skilja konuna eftir eina heima og ef fólk fer í hjónaband of ungt, eru þau talin virkilega skrítin að vera að flýta sér að fullorðnast.
Persónulega kýs ég seinni flokkinn frekar en fyrri, ég myndi ekki vilja að ef ég ætti barn og barnsfaðirinn stæði í eindæmri drykkju á meðgöngunni og uppeldinu, og að sjálfsögðu er ég heilaþveginn af samfélagsgerðinni í dag að fólk sem kvænist ungt er vitlaust.
Þrátt fyrir það er aðalspurningin, hvað er þetta að taka sitt út, hvað merkingu hefur það í lífinu þínu? Hvers vegna þarf nútímamaðurinn að gera sér þetta? Og ef þessum tímapunkti er sleppt, er möguleiki á að það missi sig þegar nær dregur á aldrinum? Ætli þeirra "midlife crisis" er að sleppa sér lausri og stunda skemmtanalífið af fullum krafti eins og 19 ára unglingur?
Bloggar | 22.2.2010 | 12:51 (breytt kl. 18:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Til hvers þarf einhvern einn dag á ári fyrir elskendur til að minna sig á hvort annað, halda rómantíska stund saman; eins og það verði einhver skylda á þessum degi. Það getur ýtt undir sambandsslit, ef annar makinn t.d. gleymir, eða undir stressi og þess háttar. Mér finnst að við Íslendingar eigum ekkert að vera að kippa okkur upp við þennan dag; enda höldum við mikið í gömlu rómantíkina og er hún alls staðar í kringum okkur; fallega náttúran okkar.
Enn og aftur er þessi dagur byggður á viðskiptahugmynd, tengist ekkert ást á neinum hætti, þetta er til þess að fólk kaupi meira af einhverju hjarta dóti sem það þarf ekkert á að halda, veitingarstaðir fyllast og biðraðir myndast í skartgripa búðum. Gerður einungis til að það komi fram gróði á þessum geira. Svona eins og það er alltaf brjálað að gera í bókabúðum rétt fyrir skólagöngur.
Ef við tökum líka Ameríkanana og hvernig fyrirmynd þeir setja til okkar Evrópu-, og þriðja ríkis búa. Þá ætlast þeir alltaf til þess að fólk komi og fari sem par. Það er alltaf endalaust stress á þeim ef þeir eiga ekki maka, eins og í giftingum, þá er sett svona "single table" fyrir þá sem eiga ekki maka, og þeir makalausu reyna að redda bara einhverjum oftast rétt fyrir giftingarveislur, bara til þess að upplifa ekki þá skömm að þurfa að lenda á "single table". Svo þessi blessaði Valentínusardagur, fær fólk virkilega til að verða þunglynt og niðurdregið ef það er makalaust. Tala nú ekki um hátíðisdagana, Þakkagjörðarhátíðardaginn og Jólin, þá er alltaf ætlast til þess að fólk eru með makanum sínum. Svo gamlárskvöld, þá er einhverskonar hefð hjá þeim að um leið og klukka slær tólf að miðnætti, þá áttu að vera með þeim sem þú elskar og kyssa hann/hana; enn og aftur verið að ýta undir að þú þarft að koma í pörum. Og það versta, þá er verið að ýta undir þetta hjá veslings yngri kynslóðunum, byrjar alveg þegar þau eru ung í grunnskóla, þá er alltaf svona kortadagur, að gefa þeim sem þú ert hrifin af "secret admire" kort og hann sem endar á því að fá ekkert kort, fer náttúrlega í fýlu og endar jafnvel með tárum. Svo þegar lengra er komið í skólann, þá fer fólk að gefa leynirósir, og svo kemur "The Prom", þá er alveg "must" að vera með deit, það lætur enginn, eða mjög fáir, sjá sig án þess að hafa maka sér við hlið. Afhverju eru kanarnir svona, hvenær byrjaði þetta og afhverju eru þeir svona virkilega æstir í að vera með einhverjum?
Bloggar | 9.2.2010 | 11:01 (breytt kl. 11:05) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ekki gleyma mikilvægasta atriðinu þegar verið er að bera á sig kremin, ekki gleyma hálsinum !
Bloggar | 29.1.2010 | 13:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
The September Issue
- Einnig þekkt sem: Untitled Anna Wintour Documentary
- Leikstjóri: RJ Cutler
- Tegund: Heimildarmynd
- Lengd: 90 mín
- Vefsíða: www.theseptemberissue.com
- Útgáfudagur: 7.janúar 2010
- Söguþráður: September tölublað Vogue árið 2007 vóg nærri fimm pund ( 2,7 kg.) og var stærsta einstaka eintak af tímariti sem nokkru sinni hefur verið gefið út. Framleiðendur þessarar heimildarmyndar fengu ótakmarkaðan að gang að hinum goðsagnakennda aðalritstjóra Vogue tímaritsins, Anna Wintour , og hennar aðstoðarfólki, á þeim tíma þegar þau unnu að ú tgáfu September tölublaðsins fræga.
Ég gef þessari heimildarmynd svona 7,3 í einkunn. Þetta er topp mynd fyrir tískufríkin, og þú ert eitt af þeim, þá skaltu ekki láta þessa fram hjá þér fara. Eflaust hafa öll tískufrík séð myndina "The Devil wears Prada" með þeim Anne Hathaway og Meryl Streep. En hún Meryl leikur harðstjóra ákveðins tímarits, sem er byggð á Sjálfri Anna Wintour (aðalritstjóra Vogue). Mjög fræðileg mynd, og þú nærð alveg að lifa þig inn í starfsandann hjá þeim þarna. Myndatökurnar eru stórkostlegar, og sjálf Sienna Miller (á coveri) spreytir sér í nokkrar tökur. Það er mikið hægt að læra af þessari mynd, hvort sem þú ert fyrirsæta, viðskiptamaður, fjölmiðlamaður, ritstjóri, ljósmyndari o.s.frv. þá er allavega eitt nýtt trix sem þú gætir lært af myndinni.
Kvikmyndir | 26.1.2010 | 18:12 (breytt kl. 18:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heitasti kúrinn í dag er svokallað detox, eða það að hreinsa líkamann með einhverri tækni og furðulegum vökvum. Mér persónulega finnst þetta vera svokallað "crap", er ekki vatn helsta hreinsunarlyf líkamans, og það er frítt. Ég þarf þá ekki að fara og eyða sparifénu mínu í gæslu hjá Jónínu Ben, ég get gengið 100 cm. og fengið það ferskt úr krananum, og eins mikið og ég vil, og næstum hvar sem ég er á landinu. Þá er það alltaf ferskt til staðar fyrir mig. Allavega finnst mér allar þessar grasætur líta út eins og hoknir uppvakningar með vannæringar glampa í augunum, fólk, við þurfum kjöt, líkaminn er byggður fyrir það, og meltingarstarfsemin líka, hvar eigum við annars að fá járnið, ekki langar mér að taka inn járn í töfluformi; rétt eins og með allt annað.
Eins og ég sé það í dag getum við nánast komist upp með það að borða ekkert, bara töflur og vatnsglas til að skola niður með. Ég get fengið mér Herbalife fæðubótatöflur í morgunmat, passa svo að taka Hydroxycut til þess að viðhalda brennslunni, svo má ég ekki gleyma vítamínstöflunum, lýsistöflunum, járntöflunum og kalktöflunum. Í millimáltíð get ég skellt einum próteinsduft drykk í mig, þar er próteinið búið að skila sínu, svo fæ ég mér sykurþrúgurstöflur, og í kvöldmat, hendi ég inn Herbalife sulli í mig, ef mér vantar millimáltíð og verð svög (með miklum líkindum), þá get ég fengið mér Nupo létt drykk.
Allir sáttir, er það ekki? Sumir hérna blekkjast svo auðveldlega, þið skiljið að þeir sem eru að selja þetta, eru einungis fólk í viðskiptum með viðskiptahugmyndir, og eina sem kemst að í hausnum á þeim er að græða peninga, ekki að láta þér líða vel, nei þeir eru sko ekki að sækjast eftir velliðanum þínum, heldur það sem þú geymir inna kortinu þínu, helst kreditkortinu.
Er fólk búið að gleyma gamla góða fæðuhringnum, ekki sé ég nýjasta tísku prótein sheikinn þar!
Við skulum setja mynd af honum hérna, rétt svona bara til þess að minna fólki á hvernig hann leit nú aftur út.
Í þessum hring er að finna grænmeti, kartöflur og baunir. Ávextir og ber(Kolvetni). Kjöt, fisk og egg(Prótein). Mjólk og mjólkurvörur. Feitmeti(Kalk). Brauð og aðrar kornvörur(Trefjar).Og þetta er undirstaða holls mataræðis. Ekki eintómt töfluát. Ef fólk heldur sig við þetta, svo má alltaf fá sér eitthvað gómsæti, en alltaf í hófi, hreyfir sig 60 - 90 mín á dag, og borðar fjölbreyttan mat, þá á það að líða vel allan daginn, með ekkert samviskubit. 
Ein spurning, eru ekki eiturefni í töflum? Veistu virkilega hvaðan þetta kemur, ertu viss um að þetta er að gera eitthvað gott við líkamann þinn? Er meltingarvegurinn búin til að brytja niður endalausar töflur? Hmmm...
Allavega þá ætla ég að koma með nokkur tips til að láta þig líða vel, og það felur ekki í sér töfluát, því ég er alfarið á móti því og ekki utanlandsferð til Jónínu Ben.
Ferskur ananas: Ef þú vaknar á hverjum morgni og færð þér ísskalt vatnsglas og ferskan ananas í kjölfarið á það að auka hraðan og betrumbæta meltinguna. Hef þú hefur verið dugleg/-ur við það á hverjum degi, þá á ekki að líða nema góð vika þangað til að þú ert farin/-n að finna verulegan mun.
Lífrænt Grænt Te: Eftir hverja máltíð er gott að fá sér heitt te, ef það er ekki til, eða þér finnst te vont, þá á heitt glas af vatni að duga. Það hjálpar þér að flýta fyrir meltingunni og hreinsa líkamann og þér líður betur eftir máltíðina.
Hafrar: Hafragrauturinn góði er mjög góður fyrir líkamann, og heldur þér orku út daginn. Ef þú ert ekkert hrifin af því, og ert meira þessi "boost" manneskja, er gott að setja hafrana t.d. í drykkinn, eða múslí.
Ef þið eruð með fleiri heilræði, varðandi alvöru neyslu mat, þá endilega koma því á framfæri 
Bloggar | 25.1.2010 | 22:29 (breytt kl. 22:31) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Það sem mun vera heitt í vor eru tvílitir kjólar, skiptist frá mitti. Eins og efnahagsástandið liggur fyrir hjá sumum, hafa flestir ekkert efni á nýjum tísku kjólum. Þrátt fyrir það er hægt að fylgja þessu eftir, ef þú átt t.d. hlíralausa boli, mittisbelti og hlíraboli. Þá er ekkert mál að velja sér munstraðan hlíralausan bol og svo svartan hlírabol, svo helst svart mittisbelti. Beltið verður að koma á milli bolanna svo skil myndast ekki. Þá ertu komin með flottan tvílitan kjól, og fólk mun ekkert taka eftir því að þetta eru gömlu fötin í skápnum þínum. Svo er hægt að skreyta þetta með stóru marglituðu veski, síðu vintage hálsmeni og flottum háum platform hælum.
Bloggar | 24.1.2010 | 15:52 (breytt kl. 16:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)



aloevera
haukurhauks
pallibjosss




